Um Hymnodiu

Hymnodia þýðir dýrðarsöngur. Þetta er latnesk útgáfa gríska orðsins hymnos. Hymnodia er í raun sálmasöngur bundinn í ljóðform, lofsöngur við helgihald kristinna manna. Upphaflega var þetta þó söngur safnaðarins sjálfs við helgihaldið. Á síðari árum hefur almennur söngur verið hafinn til vegs á ný í kirkjum og því má segja að við séum komin aftur til upphafsins og söngur kirkjugesta sé hinn eini og sanni hymni. En Hymnodia er líka kammerkór Eyþórs Inga Jónssonar, organista og söngstjóra við Akureyrarkirkju. Í kórinn hefur Eyþór valið einvalalið söngfólks til þess að flytja metnaðarfulla kórtónlist, bæði kirkjuleg verk og veraldleg. Hymnodia hefur tekið að sér fjölbreytt verkefni og aðallega flutt samtímatónlist og tónlist frá barokktímanum.

Kórinn flutti vorið 2006 verkið Membra Jesu nostri eftir Dietrich Buxtehude og fékk til liðs við sig íslenskt og sænskt barokktónlistarfólk ásamt sænsku barokksöngkonaunni Önnu Zander. Tónleikarnir voru lofaðir mjög og sama má segja um frumflutning á Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands eftir Karólínu Eiríksdóttur vorið 2008. Þar komu fram með Hymnodiu einsöngvararnir Bergþór Pálsson og Ingibjörg Guðjónsdóttir, Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari og Gunnlaugur Torfi Stefánsson kontrabassaleikari. Af öðrum verkefnum má nefna að Hymnodia hefur frumflutt verk eftir íslensk tónskáld, komið fram á Hólahátíð, á sumartónleikum í Akureyrarkirkju, við helgihald í kirkjunni og tvívegis á Myrkum músíkdögum. Á þeirri hátíð 2006 flutti kórinn flest verkanna sem er að finna á þessari plötu. Haustið 2008 kom út fyrsta plata Hymnodiu þar sem er að finna 17 verk fyrir kór án undirleiks eftir íslenskar konur. Platan fékk frábæra dóma og Morgunblaðið setti hana meðal annars í fjórða sæti yfir bestu plötur ársins. Í framhaldi af útgáfunni var Hymnodiu boðið að koma til Sviss og syngja á þrennum tónleikum í Zürich og nágrenni. Sú ferð var farin í september 2009. Hymnodia er líka stofnfélagi í Barokksmiðju Hólastiftis og tók þátt í fyrstu barokkhátíðinni á Hólum í júní 2009.

hymnodia_20081

Félagatal 2009-2010

 Sópran:
Halla Jóhannesdóttir
Helena Guðlaug Bjarnadóttir
Hildur Tryggvadóttir
Jóna Valdís Ólafsdóttir

 Alt:

Arna Guðný Valsdóttir
Elvý Guðríður Hreinsdóttir
Erna Þórarinsdóttir
Sigrún Arna Arngrímsdóttir

 Tenór:

Hjalti Jónsson
Hjörleifur Hjálmarsson
Pétur Halldórsson
Þorbjörn Haraldsson

 Bassi:

Hannes Sigurðsson
Michael Jón Clarke
Sigmundur Sigfússon
Stip Bos

 Stjórnandi:
Eyþór Ingi Jónsson

Netfang Hymnodiu: hymnodia@akirkja.is

 

Stefna Hugbúnađarhús

Mynd augnabliksins

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 2970

Dagatal

« Júní 2010 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930 

Á nćstunni

Engir viđburđir á nćstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning