- Rómantísk Hymnodia
Rómantísk Hymnodia

Næstu tónleikar Hymnodiu verða 3. júní 2010 kl. 20.00 í Akureyrarkirkju. Á efnisskránni eru rómantísk verk og þetta er í fyrsta sinn sem Hymnodia setur saman efnisskrá eingöngu með kórverkum frá rómantíska tímanum. Þetta eru einungis verk fyrir kór án undirleiks. Efnisskráin er á þessa leið:
Sir Edward Elgar (1857-1934): How calmly the evening
Edvard Grieg (1843-1907): Ave maris stella
Otto Olsson (1879-1964): Jesu dulcis memoria op. 41 nr 4
Einsöngur: Michael Jón Clarke
Wilhelm Stenhammar (1871-1927): I Seraillets have
Josef Rheinberger (1839-1901): Abendlied, op. 69 nr 3
Anton Bruckner (1824-1896): Ave Maria
Locus iste
Giochino Rossini (1792-1868): O salutaris Hostia
Pjotr Ilíitsj Tsjajkovskíj (1840-1893): Tebe poem
Sviati Bozhe
Sergej Vasílíevitsj Rakmanínov (1873-1943): Bogorotitse Devo
Óvænt aukalag ef fagnaðarlæti leyfa

