Fréttir

- Barokkhátíđ 2010

 

merki_barokksmidjunnartillaga_1

 

Nú styttist í Barokkhátíð 2010 á Hólum í Hjaltadal. Hátíðin verður haldin dagana 24.-27. júní með tónleikum, námskeiðum, fyrirlestrum og fleiri viðburðum. Komið og lærið barokkdans, fylgist með söngnámskeiði, njótið tónleika og fróðlegra viðburða á dagskránni sem hér er fyrir neðan. Fólk getur komið og farið að vild, allt frá því að njóta stakra viðburða á dagskránni upp í að vera á Hólum allan tímann. Gistingu má panta hjá Ferðaþjónustunni á Hólum í síma 455-6333 eða á www.holar.is. Nánari upplýsingar í síma 663-1842, 464-7002 eða í netfanginu barokksmidjan@holar.is. Velkomin heim að Hólum á Barokkhátíð 2010.

 

Önnur barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis
haldin á Hólum 24.-27. júní 2010

 23. júní, miðvikudagur

- Þátttakendur á hátíðinni sem vilja vera snemma í því koma heim að Hólum, hittast og koma sér fyrir.

 

24. júní, fimmtudagur

 9.00-10.00 Þátttakendur drífur að úr öllum áttum.

10.00 – 12.00 Kynning á barokkdönsum í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur, dansnámskeið hefst.

12.00-12.30 Hádegishressing

12.30-13.15 Hádegistónleikar í Auðunarstofu. Umsjón: Barokkbíllinn

13.30 – 15.00 Dansar Loðvíks 14. Dansnámskeið Ingibjargar Björnsdóttur heldur áfram.

                15.00-15.30 Síðdegishressing

15.30 – 18.00 Hljóðfæraleikarar koma saman, skipuleggja starfið, hljómsveit æfir.

18.30 Kvöldverður

20.00 Gengið upp í Gvendarskál þar sem blásið verður í lúðra og jafnvel leikið á fleiri hljóðfæri. Ef ekki viðrar til göngunnar verður henni frestað þar til seint á föstudagskvöld.

 

25. júní, föstudagur

9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur.

9.30-11.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur hefst. Hljóðfæraleikurum gefst tækifæri til æfinga. Hvort tveggja, söngnámskeið og æfingar, er opið fyrir öllum sem vilja fylgjast með.

11.00-12.00 Dansar Loðvíks 14 – Dansnámskeið Ingibjargar Björnsdóttur heldur áfram.

12.00-12.30 Hádegishressing

12.30-13.15 Hádegistónleikar í Auðunarstofu. Umsjón: Sigurður Halldórsson

13.30-15.00 Dansar Loðvíks 14 – Ingibjörg Björnsdóttir kennir

14.00-15.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur heldur áfram.

                15.00-15.30 Síðdegishressing

15.30-16.30 Erindi með tónlist í Auðunarstofu í umsjón Sigurðar Halldórssonar: Sigurður kynnir strengjahljóðfæri barokktímans.

16.45-18.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur heldur áfarm. Tími til ýmissa æfinga (hljómsveit, söngvarar, dansfólk)

                18.30 Kvöldverður

20.00     Kvöldvaka í Auðunarstofu undir stjórn Sveins Einarssonar með fróðleik, tónlist, leiklist og jafnvel dansi. Sveinn fræðir gesti um franska barokkið, einkum á dögum Loðvíks fjórtánda.

 

26. júní, laugardagur

9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur

9.30-11.00 Dansar Loðvíks 14 – Ingibjörg Björnsdóttir kennir

9.30-12.00 Æfingar (söngnámskeið, hljómsveit o.fl.)

                12.00-12.30 Hádegishressing

12.30-13.15 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju.  Umsjón: Jóhanna Halldórsdóttir altsöngkona.

13.30-15.00 Dansar Loðvíks 14. – Ingibjörg Björnsdóttir kennir

14.00-15.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur heldur áfram

15.00-15.30 Síðdegishressing

15.30-18.00 Hljómsveit hátíðarinnar æfir með dönsurum. Söngvarar æfa hjá Jóhönnu eftir þörfum.

18.30 Barokkkvöldverður í sal Hólaskóla með ýmsum viðburðum sem þátttakendur á hátíðinni undirbúa. Orð og athafnir eru frjálsar. Með öðrum orðum er óskað eftir upptroðslu af öllu tagi. Loks verður slegið upp barokkballi með undirleik hljómsveitar hátíðarinnar.

 

27. júní, sunnudagur

11.00 Barokkmessa í Hóladómkirkju

12.30 Hádegishressing
14.00 Lokatónleikar Barokkhátíðar 2010 í Hóladómkirkju. Efnisskráin er blanda af fyrir fram æfðu efni og afrakstri hátíðarinnnar.



Stefna Hugbúnađarhús

Mynd augnabliksins

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 2970

Dagatal

« Júní 2010 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930 

Á nćstunni

Engir viđburđir á nćstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning