- Barokkdansinn vinsćll!
Dansnámskeið Barokksmiðjunnar helgina 14.-15. janúar tókst mjög vel. Hátt í fimmtíu manns æfði pavane, menúett, gavotte og fleiri spor og þátttakendur voru hæstánægðir. Vonandi getum við birt myndir af námskeiðinu fljótlega hér á síðunni. Barokksmiðjan verður með árlega hátíð sína á Hólum í Hjaltadal síðustu helgina í júní í sumar og þar verður dansnámskeið meðal atriða á dagskránni. Margir þátttakendur á námskeiðinu í Ketilhúsinu lýstu áhuga sínum á að koma að Hólum í sumar til að dansa meira. Hljómsveit námskeiðsins hefur einnig áhuga á að gera eitthvað fleira, jafnvel halda tónleika á vordögum.

