Velkomin á vefsíðu Hymnodiu 

Nýjustu fréttir

  • - Barokkhátíđ 2010

     

    merki_barokksmidjunnartillaga_1

     

    Nú styttist í Barokkhátíð 2010 á Hólum í Hjaltadal. Hátíðin verður haldin dagana 24.-27. júní með tónleikum, námskeiðum, fyrirlestrum og fleiri viðburðum. Komið og lærið barokkdans, fylgist með söngnámskeiði, njótið tónleika og fróðlegra viðburða á dagskránni sem hér er fyrir neðan. Fólk getur komið og farið að vild, allt frá því að njóta stakra viðburða á dagskránni upp í að vera á Hólum allan tímann. Gistingu má panta hjá Ferðaþjónustunni á Hólum í síma 455-6333 eða á www.holar.is. Nánari upplýsingar í síma 663-1842, 464-7002 eða í netfanginu barokksmidjan@holar.is. Velkomin heim að Hólum á Barokkhátíð 2010.

     

    Önnur barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis
    haldin á Hólum 24.-27. júní 2010

     23. júní, miðvikudagur

    - Þátttakendur á hátíðinni sem vilja vera snemma í því koma heim að Hólum, hittast og koma sér fyrir.

     

    24. júní, fimmtudagur

     9.00-10.00 Þátttakendur drífur að úr öllum áttum.

    10.00 – 12.00 Kynning á barokkdönsum í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur, dansnámskeið hefst.

    12.00-12.30 Hádegishressing

    12.30-13.15 Hádegistónleikar í Auðunarstofu. Umsjón: Barokkbíllinn

    13.30 – 15.00 Dansar Loðvíks 14. Dansnámskeið Ingibjargar Björnsdóttur heldur áfram.

                    15.00-15.30 Síðdegishressing

    15.30 – 18.00 Hljóðfæraleikarar koma saman, skipuleggja starfið, hljómsveit æfir.

    18.30 Kvöldverður

    20.00 Gengið upp í Gvendarskál þar sem blásið verður í lúðra og jafnvel leikið á fleiri hljóðfæri. Ef ekki viðrar til göngunnar verður henni frestað þar til seint á föstudagskvöld.

     

    25. júní, föstudagur

    9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur.

    9.30-11.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur hefst. Hljóðfæraleikurum gefst tækifæri til æfinga. Hvort tveggja, söngnámskeið og æfingar, er opið fyrir öllum sem vilja fylgjast með.

    11.00-12.00 Dansar Loðvíks 14 – Dansnámskeið Ingibjargar Björnsdóttur heldur áfram.

    12.00-12.30 Hádegishressing

    12.30-13.15 Hádegistónleikar í Auðunarstofu. Umsjón: Sigurður Halldórsson

    13.30-15.00 Dansar Loðvíks 14 – Ingibjörg Björnsdóttir kennir

    14.00-15.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur heldur áfram.

                    15.00-15.30 Síðdegishressing

    15.30-16.30 Erindi með tónlist í Auðunarstofu í umsjón Sigurðar Halldórssonar: Sigurður kynnir strengjahljóðfæri barokktímans.

    16.45-18.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur heldur áfarm. Tími til ýmissa æfinga (hljómsveit, söngvarar, dansfólk)

                    18.30 Kvöldverður

    20.00     Kvöldvaka í Auðunarstofu undir stjórn Sveins Einarssonar með fróðleik, tónlist, leiklist og jafnvel dansi. Sveinn fræðir gesti um franska barokkið, einkum á dögum Loðvíks fjórtánda.

     

    26. júní, laugardagur

    9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur

    9.30-11.00 Dansar Loðvíks 14 – Ingibjörg Björnsdóttir kennir

    9.30-12.00 Æfingar (söngnámskeið, hljómsveit o.fl.)

                    12.00-12.30 Hádegishressing

    12.30-13.15 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju.  Umsjón: Jóhanna Halldórsdóttir altsöngkona.

    13.30-15.00 Dansar Loðvíks 14. – Ingibjörg Björnsdóttir kennir

    14.00-15.00 Söngnámskeið Jóhönnu Halldórsdóttur heldur áfram

    15.00-15.30 Síðdegishressing

    15.30-18.00 Hljómsveit hátíðarinnar æfir með dönsurum. Söngvarar æfa hjá Jóhönnu eftir þörfum.

    18.30 Barokkkvöldverður í sal Hólaskóla með ýmsum viðburðum sem þátttakendur á hátíðinni undirbúa. Orð og athafnir eru frjálsar. Með öðrum orðum er óskað eftir upptroðslu af öllu tagi. Loks verður slegið upp barokkballi með undirleik hljómsveitar hátíðarinnar.

     

    27. júní, sunnudagur

    11.00 Barokkmessa í Hóladómkirkju

    12.30 Hádegishressing
    14.00 Lokatónleikar Barokkhátíðar 2010 í Hóladómkirkju. Efnisskráin er blanda af fyrir fram æfðu efni og afrakstri hátíðarinnnar.


  • - Frábćr rómantík!

    Frábær rómantík!

     

     

    Tónleikarnir í Akureyrarkirkju 3. júní þar sem Hymnodia flutti kórverk frá rómantíska tímanum tókust frábærlega og aðsókn var góð, hátt í 200 manns. Andvörp sem heyrðust frá áheyrendum eftir fyrsta verkið hleyptu kórnum enn meiri anda í brjóst og áheyrendur lýstu mikilli hrifningu sinni og ánægju að tónleikunum loknum. Hér getur að heyra eitt verkanna á efnisskránni í upptöku sem gerð var með einum stereo-hljóðnema á tónleikunum, O salutaris hostia eftir Rossini.

     

     


  • - Rómantísk Hymnodia

    Rómantísk Hymnodia

     

    tsjajkovskj

     

    Næstu tónleikar Hymnodiu verða 3. júní 2010 kl. 20.00 í Akureyrarkirkju. Á efnisskránni eru rómantísk verk og þetta er í fyrsta sinn sem Hymnodia setur saman efnisskrá eingöngu með kórverkum frá rómantíska tímanum. Þetta eru einungis verk fyrir kór án undirleiks. Efnisskráin er á þessa leið:

    Sir Edward Elgar (1857-1934): How calmly the evening
    Edvard Grieg (1843-1907): Ave maris stella
    Otto Olsson (1879-1964): Jesu dulcis memoria op. 41 nr 4
             Einsöngur: Michael Jón Clarke
    Wilhelm Stenhammar (1871-1927): I Seraillets have
    Josef Rheinberger (1839-1901): Abendlied, op. 69 nr 3
    Anton Bruckner (1824-1896): Ave Maria
                                              Locus iste
    Giochino Rossini (1792-1868): O salutaris Hostia
    Pjotr Ilíitsj Tsjajkovskíj (1840-1893): Tebe poem
                                                        Sviati Bozhe
    Sergej Vasílíevitsj Rakmanínov (1873-1943): Bogorotitse Devo

    Óvænt aukalag ef fagnaðarlæti leyfa


  • - Miđnćturtónleikar á föstudaginn langa

     

    Miðnæturtónleikar á föstudaginn langa

     

     

    krossfesting

     

    Hymnodia kemur fram á miðnæturtónleikum í Akureyrarkirkju

    að kvöldi föstudagsins langa.

     

     


     

    Lesa meira

Stefna Hugbúnađarhús

Mynd augnabliksins

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 2970

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Á nćstunni

Engir viđburđir á nćstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning